It's been a long long time
Það er komið ansi langt síðan ég hef skrifað bloggfærslu. Ég hef verið upptekinn við að læra, fyrst og fremst lesa og vinna að BA-ritgerðinni, og svo að sjálfsögðu bara að njóta lífsins með Sollu. Líklega verður þetta svona eitthvað áfram, fáar bloggfærslur en meira af lífi og lærdóm.
Ég ætla ekki að nöldra um kreppuna eins og allir aðrir bloggarar heimsins (eða Íslands a.m.k.) þó ég hafi margt um hana að segja. Í stuttu máli sagt, svona er kapítalisminn. Take it or leave it.
Hérna í Köben voru þrír lögregluþjónar fyrir stuttu dæmdir til fangelsisvistar fyrir að berja saklausan 17 ára dreng í tengslum við Ungdomshuset-mótmælin á síðasta ári. Það er gott að helv. löggan komist ekki alltaf upp með ofbeldið en ég er býsna smeikur um að þessi dómur sé bara til að friða fólk en ekki koma upp neinum forvörnum eða strangara eftirliti með lögreglunni.
Í kjölfarið af þessum dóm hafa 14 lögreglumenn nú hótað því að segja upp, verði hinir dæmdu ekki fundnir saklausir á næsta dómsstigi (að sjálfsögðu áfrýjuðu þeir). Þeir segja að dómurinn þýði að lögreglan geti ekki lengur sinnt vinnunni sinni án ótta við ákæru, að dómurinn hafi hunsað vitnisburð lögregluþjónanna en trúað hverju orði drengsins og fleira í þeim dúr. Talsmaður þeirra, Anders Reinholdt, vísar til ráðstefnunnar um loftslagsmál sem fram á að fara hér í Köben haustið 2009 og þau mótmæli sem þá munu fara fram og segir að þessi dómur hefti möguleika lögreglunnar til að bregðast við þeim.
En þetta er bara væl. Þeir eru bara ósáttir við að mega ekki haga sér eins og þeim lystir, að höft séu sett á vald þeirra og beitingu þess. Það er einkennandi fyrir hugsanagang lögreglunnar að þar sem þeir teljast sem "verndarar laga og reglu" þá séu þeir sjálfkrafa hafnir yfir lög og rétt og allar tilraunir til að setja á þá höft eru túlkaðar sem árásir á starfsstétt þeirra. Það er alveg magnað að heil starfsstétt virðist telja það sinn ósnertanlega rétt að mega ganga um bæinn og ógna og hóta fólki og berja það ef þeim sýnist.
Þessi skilyrðislausa samstaða meðal lögreglumanna er líka alveg út í hött. Ég skil vel að menn standi með sínum félögum en þessi hugsanalausa fylgni er bara kjánaleg og sýnir bara hversu ófærir lögregluþjónar eru um sjálfstæða hugsun, að taka sjálfstæðar ákvarðanir, viðurkenna eigin mistök og líta í eigin barm.
Ég var því ánægður þegar ég rakst á komment frá þankabankanum Center for Rets- og Politiforskning, Cerepo, hvar lögregluþjónarnir 14 eru hvattir til þess einmitt að segja upp því yfirlýsingar þeirra sýni hversu óhæfir þeir séu til að gegna þessu starfi. "Ef þjónarnir 14 hafa svona takmarkaðan skilning á þrískiptingu ríkisvaldsins og eru svona ófærir um að skilja efni dómsins þá er það líklega best fyrir alla aðila að þeir leiti sér að annarri vinnu núþegar" stendur í fréttatilkynningu frá Cerepo. Í tilkynningunni kemur fram að rétturinn hafi nefnilega ekki hunsað frásagnir lögregluþjónanna þriggja sem dæmdir voru heldur hafi verið mörg óháð vitni að umtalaðri barsmíð og að frásagnir lögregluþjónanna hafi verið í ósamræmi við hvor aðra. Tilkynningin dregur einnig úr ótta þjónanna 14 um að verða kærðir fyrir að sinna vinnunni sinni og bendir á að árið 2006 hafi einungis átta af heilum 379 kvörtunum undan lögregluofbeldi verið fylgt eftir og málið rannsakað. Af þessum 371 sem ekki voru rannsökuð nánar voru 210 lögð til hliðar einmitt vegna þess að í þeim málum stóð bara orð gegn orði og engin önnur sönnunargögn eða vitni til staðar.
Lögreglan þarf því ekki að hafa áhyggjur. Ef þeir bara passa sig að enginn sjái, þá geta þeir haldið áfram að lemja fólk til óbóta án þess að óttast nokkrar afleiðingar um ókomna framtíð.
Í öðrum fréttum má nefna að síðan BNA réðust inn í Írak árið 2003 hafa íraskar dauðasveitir drepið að minnsta kosti 487 samkynhneigða einstaklinga þar í landi, og samkvæmt hagsmunasamtökum samkynhneigðra Íraka, sem hafa safnað saman þessum tölum, er þetta bara toppurinn á ísjakanum. Dauðasveitirnar eru starfræktar af fúndamentalískum trúarsamtökum en með dyggum stuðningi lögreglu og innanríkisráðuneytisins. Og frelsisberarnir og bjargvættirnir í Bandaríkjaher? Þeim er alveg sama og segja "helvítis hommana" hafa kallað þetta yfir sig. Einn offiser sem samkynhneigður íraskur túlkur leitaði til sagði m.a. "Þið eruð sjúkdómur. Skítahrúga. Við höfum ekkert pláss fyrir fólk eins og þig." Bandarískir hermenn níðast reglulega á samkynhneigðum íröskum starfskröftum sínum og skipta sér ekkert af fjöldamorðinu, "kynferðishreinsuninni" sem á sér stað í þessu stríðshrjáða landi.
Já þetta er skemmtilegur heimur sem við búum í.
(fréttirnar sem ég notaði sem heimildir má finna á síðunni www.modkraft.dk )