Nú er krepputími. Mín persónulegu komment mega bíða seinni tíma en hér eru nokkur frá Ólafi Friðrikssyni, einum af forsprökkum sósíalistahreyfingariinnar á Íslandi, sem var undir áhrifum frá anarkistanum Pjotr Kropotkin, og hafði margt merkilegt að segja um efnahagslegt fyrirkomulag á Íslandi á byrjun 20. aldar og eiga jafn mikið við í dag:
"Meðan landsmenn eyða jafnmiklu, eða meiru, en tekjur þeirra nema, þá verður alltaf peningaleysi í landinu, hvað háum útlendum gulldyngjum sem bankarnir hafa af að taka."
"Lánin eru niðurdrep fyrir efnahag þjóðarinnar"
"Það er óvist, hvort þau félög, sem lána út, hefðu ekki betur verið óstofnuð"
"Þeir sem hafa vasana troðfulla af peningum, kunna sjaldnast að meta þá, né með þá að fara."
Ritað í Kaupmannahöfn árið 1910. Ritið í heild má finna hér:
http://www.felagshyggja.net/OFUFV.pdf