Dec 1, 2008
Framtíðarsýn (ölvuð)

Nú kann það að vera að ég umgangist einungis öfgasinnað vinstrafólk og að það takmarki sýn mína á ástand mála. Sú staðreynd að ég bý í Danmörku, en ekki á Íslandi, kann líka að hefta möguleika mína á að "taka púlsinn" á íslensku samfélagi í dag.
En ég skil ekki hvernig fólk getur ennþá talað í hefðbundnum stjórnmálum. Hafa þau ekki stímað beint upp á flæðisker? Siglt skútunni í strand? Kúvent skipinu?
Mér finnst alveg magnað hvernig fólk getur ennþá talað um "lausnir" í sömu andrá og það tjáir innilega þrá sína fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum; batteríi sem er alræmt fyrir að gera nýfrjálshyggjustefnu í fjármálum að úrslitakosti í öllum sínum lánveitingum síðustu 10-20 ára! Þetta er eins og draumar amerísks almennings um "breytingar" í kjölfar kosninga Baracks Obama, þegar það eina sem um er að ræða eru stjórnarskipti "í brúnni" en ekki umvarp skipulagsins eins og það leggur sig. Hverju breytir það þó demókrati stjórni BNA? Engu! Hverju breytir það þó Ísland gangi í ESB? Engu! Hagkerfið er hið sama. Miðstýringin er sú sama. Sérfræðingastjórnin er sú sama. 4 ára stjórnarumboðið er hið sama. Máttleysi hins almenna borgara er hið sama. Vinnufyrirkomulagið er hið sama. 'Forkólfar atvinnulífsins' eru hinir sömu. Stjórnmálamennirnir eru hinir sömu (einu breytingarnar eru breytt skipan ráðuneytisstóla, ekki kerfisins). Forsprakkar verkalýðsfélaganna eru hinir sömu. Umræðurnar verða hinar sömu. Lausnirnar verða hinar sömu.

Ég geri mér engar grillur um það að 'anarkísku samfélagi' verði komið á á næstunni. Það er óskhyggja. Ég á mér enga drauma um að íslenskt samfélag taki 'markvissa vinstribeygju' til langstíma, ef nokkuð í áttina. Hætturnar á næstu mánuðum eru jafnvel fleiri en möguleikarnir. En í fyrsta skipti í áraraðir eru einhverjir 'möguleikar' þó innan seilingar, og það er meira en hægt var að óska sér fyrir nokkrum árum síðan. Í fyrsta skipti í langan tíma hefur stór hópur almennings á Íslandi tekið eigið líf í eigin hendur. Það hafa ekki verið jafn fjölmenn mótmæli gegn sitjandi ríkisstjórn í rosalega langan tíma. Og þessi almenningur er ekki lengi blindaður af skammtíma-markmiðum stjórnmálaflokka. Ekki einu sinni Vinstri-Grænir fara varhluta af þeirri almennu vantrú á kerfinu sem slíku sem nú á sér stað. Það er gott. Kerfið mun ekki breytast. En loksins er kominn töluverður hópur fólks sem sér í gegnum tálsýn fulltrúalýðræðisins eins og það birtist í íslenskri mynd. Stór hópur fólks trúir ekki lengur á að 'hagsmunum þjóðarinnar' sé best fólgið innan raða einstaklinga sem hafa stjórnmál að atvinnu. Að Alþingi sé upphaf og endir íslenskrar stjórnmálaumræðu. Að mótmæli séu einkaeign Samtaka Herstöðvarandstæðinga og 'atvinnumótmælenda' og séu 'hallærisleg'. Þetta er upphaf nýrra tíma, ekki endirinn.

Að öllum líkindum mun ESB-aðild verða útkoman úr núverandi kreppu. Það mun ganga sæmilega í nokkur ár. Svo kemur ný kreppa. Nýfrjálshyggjan, kapítalisminn, flokkakerfið, fulltrúalýðræðið, allt þetta verður enn við völd og því fylgja kreppur, stjórnmálalegar og efnahagslegar. Enn og aftur munu 'innflytjendamál' verða stéttaátökum yfirsterkari og þeir einu sem græða á því eru miljónamæringarnir sem sitja nú við völd og munu sitja þá við völd. Stríðin munu enn geisa. Og fjöldauppsagnirnar. Og bankakrísurnar. Og misskipting auðsins. Og misskipting valdsins. Og svo verðum við komin aftur á upphafsreit, en þá munu andstæðingarnir verða helmingi stærri, helmingi sterkari. Og aftur kemur piparúðinn, 'skríls'ásakanirnar, skömmin og niðurlægingin.
En þá munum við líka vera sterkari. Því núverandi ástand mun ekki gleymast. Og sökudólgarnir munu ekki gleymast heldur. Að lokum munum við vinna, því réttlætið er okkar, allra!

Posted at 04:33 am by villivillason

 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments





Previous Entry Home Next Entry





villivillason
Male
Iceland
Velkomin á síðuna mína. Hér tjái ég skoðanir mínar á mönnum og málefnum, segi frá því helsta sem á daga mína drífur og skrifa ritdóma um bækur sem ég hef verið að lesa. Ég hef óhefðbundnar skoðanir og hika ekki við að kalla stjórnmálamenn og aðra sem ráðskast með líf mitt og annarra öllum illum nöfnum. Málefnalegheit eru fyrir pólitíkusa og nýaldarhippa. Öllum er velkomið að andmæla mér, nöldra í mér og rífast við mig hér á síðunni en ekki taka því persónulega þó ég nenni ekki að fara út í meiriháttar ritgerðasmíðar bara til að rökræða við fólk á netinu. Ég hef þarfari hnöppum að hneppa.

<< December 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05 06
07 08 09 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed